top of page

um okkur 

Við erum tvær stelpur úr Laugalækjarskóla og þetta er lokaverkefnið okkar. Það tók sinn tíma að ákveða umfjöllunarefnið, en að lokum tókum við ákvörðun um að fjalla um kvíða. Rannsóknarspurningin okkar er: „Hvað er kvíði og hver er munurinn á kvíða og kvíðaröskun?“Okkur langaði að fjalla um kvíða vegna þess að okkur finnst vanta upplýsingar og umræðu um þetta efni á meðal okkar jafnaldra. Þetta efni á einnig til með að vera þaggað  niður í samfélaginu. Í þessu verkefni höfum við fræðst heilmikið um kvíða, orsakir hans og einkenni, og finnst við nú skilja betur þá sem glíma við erfiðleika tengdum kvíða.

bottom of page